Jafnrétti fyrir alla heldur til Amsterdam
Jafnrétti fyrir alla fór til Amsterdam og tók þátt í ráðstefnunni The Art of Belonging sem haldin var í þriðja sinn 30.11 – 02.12.17. Við héldum erindi um verkefnið okkar, skærulist og myndaritgerðir og hlustuðum á margar áhugaverðar kynningar um samvinnurannsóknir í fötlunarfræði. Við nýttum líka tímann og kíktum í bæinn, fórum út að borða, fengum okkur bjór, versluðum föt og fórum á Momo safnið og skoðuðum sýningu skærulistamannsins Banksy.
Margret van Kampenhout notaði gangbrautina á Ísafirði sem dæmi um samfélagslegar hindranir, skemmtilegt fannst okkur.
Eftir að vera búin að skrá okkur á ráðstefnuna, æfa fyrirlesturinn og hitta fólk skelltum við okkur í bæinn.
Við fórum út að borða fyrsta kvöldið. Á leiðinni heim gengum við meðfram síkinu og nutum fegurðarinnar.
Ragnar og Gísli með Kathrine Runswick-Cole prófessor við háskólann í Sheffield. Hún sýndi myndbönd hún hafði unnið með einhverfu fólki í Kanada.